3. mars 2009

Svalir og sjálfbærni - Reykir

Guðríður Helgadóttir, garðyrkjufræðingur
Haldið í samstarfi við Garðyrkjufélag Íslands og
Hafsteinn Hafliðason, garðyrkjufræðingur
Græna geirann, laugardaginn 7. mars, kl. 09:00-15:00

 

Námskeiðið er einkum ætlað áhugafólki um ræktun matjurta á svölum og í litlu plássi.


Á námskeiðinu verður farið yfir hvernig standa skuli að undirbúningi á matjurtaræktun á svölum utanhúss. Farið yfir mikilvægi þess að jarðvegur sem valinn er til ræktunar sé nægilega góður. Komið verður inn á staðsetningu ræktunaríláta með tilliti til úrkomu, sólar og skjóls. Kynnt verða möguleg ræktunar ílát þar sem pláss er lítið. Einnig verður farið yfir hvernig hægt er að raða ræktuninni fallega upp í ker, potta o.fl. þannig að þau nýtist jafnframt sem skraut, eins verður farið í hönnun á plöntupýramídum o.fl. sem nýtast vel þar sem mjög lítið pláss er.
Ath.  smellið á titil fréttar til að lesa alla fréttina.

 

 Farið verður yfir hvers konar umhirðu sé almennt þörf til að ná sem bestri uppskeru. Kynntar helstu tegundir sem henta til ræktunar við þessi skilyrði. Hvernig standa skuli að uppskerunni og hvernig best er að geyma matjurtirnar fram að notkun. Möguleikar á lífrænni ræktun skoðaðir og hvernig hægt er að nota afskurði úr ræktuninni í safnhaugagerð. Hluti námskeiðsins er verkleg sýnikennsla.

 

Guðrún Brynja Bárðardóttir, garðyrkjufræðingur
Kennarar:
Guðríður Helgadóttir forstöðumaður starfs- og endurmenntunardeildar LbhÍ, G. Brynja Bárðardóttir brautarstjóri blómaskreytingarbrautar LbhÍ og Hafsteinn Hafliðason garðyrkjufræðingur.

Tími: Lau. 7. mars, kl. 09:00-15:00 (7 kennslustundir) hjá Landbúnaðarháskóla Íslands, Reykjum, Ölfusi.

Verð: 12.000 kr. (Kaffi, hádegismatur og gögn innifalin í verði)

Staðfestingargjald: Staðfesta þarf skráningu með því að millifæra 3.000kr (óafturkræft) á reikninginn 1103-26-4237, kt. 411204-3590.

Skráningar: endurmenntun@lbhi.is (fram komi nafn, kennitala, heimili, sími og nafn námskeiðs) eða hafa samband í síma: 433 5000
 

 


Til baka



SKRIFAÐU ÁLIT ÞITT

Fyrirsögn

Álit

Hvað er 2+3?

Undirskrift 



SENDA ÞESSA FRÉTT Í TÖLVUPÓSTI

Netföng viðtakenda:


  

Skilaboð

Hvað er 2+3?

Nafn sendanda:


yfirlit frétta